Blommi
Leitarbox

Myndasöfn
Könnun
Eru konur nauðgarar líkt og karlmenn
1 atkvæði

Nei
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 1
26.08.2010 01:47:44 / Blommi

Prestar, pervertar og kynvillingar


Undanfarna daga hefur allt snúist um kirkjunnar menn, aðalega um þá hærra settu.  Þeir vilja segja sem minst, að venju en urðu víst tvísaga sumstaðar og fóru svo að viðurkenna á sig að hafa tekið þátt í þöggun á perragangi innan þjóðkirkjunnar sem staðið hefur í mörg ár.
Þagar fréttir fóru að berast af fjölda fólks við Þjóðskrá, fólk sem ætlaði að skrá sig úr þjóðkirkjunni, var skotið saman neyðarfundi hjá prestastéttinni.  Þaðan bárust svo óskir um fyrirgefningu.  ´Ég gef svo sem lítið fyrir afsökunarbeiðnir frá þeim sem neyddur er til að bera hana fram, það liggur venjulegast lítil meining á bak við þær.
Prestarnir mættu svo sem biðja Guð fyrirgefningar á því að láta pína sig til rangra verka og fara gegn hinni Heilögu bók með því að gifta kynvillinga.

Frétt um afsökunarbeiðnina er HÉRNA


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2010 20:02:43 / Blommi

Konur eru nauðgarar

Konur nauðga líka.  Þetta kom fram í Ísland í dag á stöð2 í kvöld.  Maður sem segist hafa orðið fyrir misnotkun kynferðislega nokkuð oft í uppvextinum segir að það megi ekki tala um að konur nauðgi karlmönnum, það sé einfaldlega ekki á dagskrá.
Talið er að um 25% nauðgara séu konur og þar hafið þið það.

Nú geta konur aðeins farið að hægja á sér með slagorðin "karlmenn eru nauðgarar" þegar búið er að fletta ofan af duldum fýsnum þeirra.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2010 19:55:57 / Blommi

Unglingar með rafstuðtæki

Í dag kom upp hópbardagi unglinga í Hafnarstræti.  Þarna voru 20 pörupiltar að berjast, sumir vopnaðir kylfum.  Einhver þeirra virist hafa verið með rafstuðtæki, sem er ólöglegt.  Það þurfti alla vega að flytja einn til læknis en hann hafði verið sparkaður illa ásamt því að fá að kenna á rafstuðtækinu.

Er þá ekki tímabært að lögreglan geti gripið til rafbyssa þegar unglingar eru farnir að nota svona á götunni.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég sé umfjöllun um rafstuðtæki í höndum óvandaðra hér á landi.

Hvaða andskotans vitleysingi dettur svo í hug að redda unglingum rafstuðtæki ?

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 22:27:55 / Blommi

Atvinnutrúðar í framboði


Nú er trúðaflokurinn að gera það gott í henni Reykjavík.  Samkvæmt könnun munu þeir eiga að fá 6 borgarfulltrúa sem er bara nokkuð gott hjá grínframboði Jóns Gnarr.
Grínframboð hefur svo sem komið fram áður og fengið nokkuð gott í könnunum.  Eftirhreiturnar hafa hins vegar orðið á annan veg þegar fólk hefur kosið.
Ég trúi því ekki að atvinnutrúðarnir fari að ná neinum ósköpum í kosningum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2010 13:00:00 / Blommi

Flugraunir

Mikill straumur flugvéla hefur verið inn á íslenska flugstjórnarsvæðið, búist er við áframhaldandi mikilli umferð. „Vegna umferðarinnar sem er í meira lagi óvenuleg vegna umfangs og flækjustigs hefur mönnun á flugumferðarstjórum tvöfaldast og eru tuttugu og tveir á vaktinni í þegar mest er að gera.
 
Ég held að fólk ætti bara að halda sig heima.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2010 12:01:06 / Blommi

Hvert stefnum við ?

Hvert stefnum við ?  Undanfarið hefur fréttaflutningur verið tölverður um ruddalegan framgang manna sem hafa ráðist á og lamið fólk, nánast til óbóta.  Flytja hefur þurft marga með sjúkrabílum á slysó eftir þessar meðferðir ruddana.

Svo á síðurstu þremur dögum hafa fundist menn, látnir, og andlát þeirra hið dularfyllsta.  Lögreglan verst allra frétta en er að rannsaka málin.

Þá eru innbrot og þjófnaðir að aukast, virðirt vera.  Alla vega er fréttaflutningur af þvílíku nægur.

Er ekki nóg komið, lögreglan hafði víst í nægu að snúast í nótt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2010 12:32:22 / Blommi

Nú skal hlegið

Svokallaður hláturklúbbur ætlar að fara í gönguferð í dag í Laugardalnum.  Það er víst alþjóðlegur hláturdagur í dag.  Reikna má með að einhverjum stökki bros og öðrum takist að kreista upp einhverja hlátursgusu.  Það ætti svo sem að vera hægt ef hugsað er til þess hverslags fífl við vorum þegar nokkrir óvandaðir menn gerðu okkur að öreigum.

Grínlaust, þá er grín og hlátur bara af hinu góða og ætti fólk að mæta í dalinn kl. 13:00 í dag til að létta sér lund.


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2010 11:59:54 / Blommi

Hrægammarnir

„Það er orðið brýnt að Alþingi standi vörð um skuldug heimili, hrægammarnir bíða í röðum og það er erfitt fyrir réttindalítið fólk að verjast árás þeirra," sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG,
Í sama streng tekur Árni Johnsen. 
Það er gott ef alþingismenn eru farnir að vakna til lífsins og sjá vanefndir Jóhönnu og Steingríms hvað varðar skuldavanda heimilanna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2010 19:59:00 / Blommi

Hún er að fara

Helga Jónsdóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð, sækist ekki eftir að verða ráðin aftur í starfið þegar ráðningartímabil hennar rennur út eftir sveitarstjórnarkosningar í vor.
Ég kem nú ekki til með að sjá eftir henni sem bæjarstýru.  Mér fannst eins og mörgum að hún sinnti því starfi sem hlutastarfi, skyldan kallaði annarstaðar, frá suðurlandinu.
Vonandi kemur bæjarstjóri sem sinnir ekki öðru en hann er ráðinn til.

Frétt um málið er HÉR

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2010 00:07:15 / Blommi

Tarzan og skessan í fjallinu

Nú gengur sú saga fyrir austan að skessan í fjallinu sé komin til bygða og ætli sér að glíma við Tarzan.  Það þeirra sem vinnur slaginn mun hljóta borgarstjórastólinn á Seyðisfirði í verðlaun.  Hvort þeirra verður ofaná verður fróðlegt að sjá en bardaginn getur orðið harður ef marka má sögusagnirnar.

Frétt um málið er HÉR

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2010 11:31:09 / Blommi

Tónlist og brjóstahaldarar

Hvenig er lífið án tónlistar ?  Ef við viljum komast að því þá er best að fara til Sómalíu en þar er búið að banna tónlist eins og svo margt annað í nafni Islam.  Ég get svo sem séð lífið án brjóstahaldara, það gæti bara verið nokkuð smart, stundum.  Málið er að nú er búið að banna tónlist.

Islamistar hafa áður bannað kvikmyndir, tónlistar hringitóna í farsímum og brjóstahaldara.

Frétt um málið er hér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2010 00:05:44 / Blommi

Þegar biskup kallar til bænahalds...

Þegar biskup Íslands lagði það til við prestastéttina í landinu að verða sér út um Rannsóknarskýrslu Alþingis og láta hana liggja fammi í kirkjum svo fólk gæti lesið hana og síðan legið á bæn á eftir, leist mér ekki á blikuna.  Hvað var það sem biskup vissi um skýrslu na sem var svona svakalegt að fólk ætti að henda sér á skeljarnar eftir lestur hennar.
Ekki var það til að laga það þegar fréttamenn fóru að sauma að dómsmálaráðherra um hvort lögreglan yrði ekki klár þegar skýrslan kæmi fram.  Þá hélt ég að allt yrði vitlaust og sá fyrir mér blóðug slagsmál og bænahald.
Svo kom skýrslan og kom fátt þar á óvart.  Það sem kom fram var bara það sem komið hefur áður á bloggsíðum frá hruninu og var þá kallað bull í fólki.  Það sem kanski kom ekki fram voru einstaka setningar úr samtölum ráðamanna.
Ég sé nú að fólk hefur verið hrætt um of á þessari skýrslu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2010 18:23:34 / Blommi

Þjarmað að fátækum skuldurum..

Það er lítið gert núna þessa dagana nema að koma með hótanir og loforð.  Lítið er um framkvæmdir hjá þingmönnum.  Á meðan þeir eru að hóta og lofa almenningi lagfæringum á lánum og gera síðan ekkert, djöflast lánveitendur á þeim skuldurum sem verst eru settir til að ná þar nauðarsamningum sem heldur síðan fólki í skuldafjötrunum áfram um ókomna tíð.

Hér er byrjun á frétt af hótunum og loforðum: Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að ef ekki næst samkomulag við eignaleigufyrirtækin um hvernig leysa eigi skuldavanda þeirra sem tóku bílalán í erlendri mynt þá verði löggjöf beitt til að leysa vandann.

Svona nokkuð er ég búinn að sjá af og til í vetur frá honum Árna.  Er ekki komin tími til fyrir hann að gera eitthvað annað en að tala og tala.

Það er ljótt að kveikja von í brjósti þeirra sem lítið hafa og drepa svo í jafn óðum.

Hérna er fréttin öll



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2010 13:58:53 / Blommi

Þeir ríku verða ríkari.....

Steingrímur J. segir að fátækt sé ekki til á íslandi, eða þá að hún sé hverfandi lítil.  Er gamli komminn svona helvíti tvöfaldur í roðinu.
Það vita jú allir að fátækt hefur verið til hér á landi frá landnámi.  Núna eru þeim fátæku bara að fjölga all verulega og koma þá gömlu orðin upp í huga mér "Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku verða fátækari".
Þetta er það sem gamli komminn vill ekki hafa í dag en hélt uppi áróðri um áður en hann fékk ráðherrastólinn.
Það verða ljótu lætin eftir birtingu skýrslunnar á mánudagin, þá gæti karl kvölin misst stólinn sinn í kjölfarið, stólinn sem hann fórnaði eigin samvisku fyrir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2010 10:48:23 / Blommi

Flúði Davíð Oddsson land ?

Fréttir eru af því að Davíð Oddson sé nú farinn af landi brott og komi til með að halda sig einhverstaðar í útlöndum á næstunni.
Birta á rannsóknarskýrslu Alþingis næstkomandi mánudag, ef því verður ekki frestað að venju.  Alla vega hefur kjarkinn vantað hjá ríkisstjórninni til þess hingað til.
Spurningin er, eru fleiri sem flýja landið fyrir næsta mánudag ?

Frétt um málið  Smella Hér


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 35181
Klukkan
Dagsetning
29. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti